Bræðurnir breyta jólunum

Bergrún Íris Sævarsdóttir, Haukur Gröndal

2,990 ISK
2,990 ISK
Kertasníkir arkar til byggða í sannkölluðu jólaskapi, spenntur að dansa í kringum jólatré með glöðum börnum og hitta bræður sína á gistiheimilinu Grýlukoti. Þar mæta honum hins vegar svekktustu sveinar sem hann hefur augum litið!

Jólasveinarnir lýsa því daprir hvað aðventan hafi verið leiðinleg. Fólk sé allt of upptekið, enginn syngi og hinn sanni jólaandi sé á bak og burt! Sem betur fer fær Kertasníkir hugmynd að prakkarastriki sem bjargað getur jólunum og breytt þeim til hins betra!

Bergrún Íris hefur hlotið mikið lof fyrir bækur sínar, bæði sögur og myndir. Hér leiða þau Haukur Gröndal saman hreindýr sín en hann á að baki glæstan feril með ýmsum hljómsveitum.

Bræðurnir breyta jólunum er hjartnæmt jólaævintýri og sannkölluð veisla fyrir augu og eyru. Tónlistin fylgir sögunni sem niðurhal og streymi.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Bræðurnir breyta jólunum

Bræðurnir breyta jólunum

2,990 ISK
2,990 ISK