Brúðkaupsfólkið
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Brúðkaupsfólkið
Brúðkaupsfólkið er framsækin skáldsaga um óvæntan brúðkaupsgest og fólkið sem hjálpar henni að byrja upp á nýtt.
Það er fallegur dagur í Newport, Rhode Island þegar Phoebe Stone kemur á hið stórfenglega Cornwall hótel í grænum kjól og gylltum hælaskóm, farangurslaus og alein.
Starfsfólk og hótelgestir gera ráð fyrir að hún sé ein af brúðkaupsfólkinu en hún er reyndar eini gesturinn á hótelinu sem er ekki mættur til að taka þátt í stóra viðburðinum. Phoebe er hingað komin af því að hana hefur dreymt um það í mörg ár – dreymt um að borða ostrur og sigla í sólarlaginu með eiginmanni sínum. En nú er hún hér án eiginmannsins, algjörlega á botninum, harðákveðin í að splæsa yfirgengilega í sjálfa sig, í síðasta sinn. Á sama tíma hefur brúðurin hugsað fyrir hverju einasta smáatriði og öllu sem farið gæti úrskeiðis þessa helgi, öllu nema Phoebe og fyrirætlunum hennar – sem gerir böndin sem þær tengjast enn sérstakari.
- Skáldsaga ársins 2024 á Goodreads
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Brúðkaupsfólkið