Dagar löngunar

Nirmal Verma

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK

Indverskur stúdent er fenginn til þess að vera túlkur austurrískrar konu á ráðstefnu í Prag á kommúnistatímanum. Þau fella hugi saman. Vetrarstemningin í Prag myndar dulúðuga umgjörð um ákaft og eldheitt ástarsamband sem óhjákvæmilegt er að verði skammlíft. Með næmu auga fyrir smáatriðum dregur indverski rithöfundurinn Nirmal Verma upp áhrifamikla mynd af ástríðufullri ást sem snertir lesandann djúpt.
Gyrðir Elíasson íslenskaði.
Nirmal Verma (1929–2005) var einn virtasti rithöfundur Indlands á síðari hluta tuttugustu aldar. Hann skrifaði skáldsögur, smásögur, ritgerðir og ferðalýsingar. Hann hafði mikil áhrif á indverskar bókmenntir með því að færa sjónarhorn þeirra frá þjóðfélagslegu raunsæi til einstaklingsins og sálræns hlutskiptis hans í nútíma þjóðfélagi. Verma bjó í Prag í tíu ár og þýddi þá meðal annars verk eftir tékknesku höfundana Kundera, Capek, Hrabal og Otcenášek á Hindi, auk þess að þýða verk eftir Tolstoj og Alexandr Kuprin.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Dagar löngunar

Dagar löngunar

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK