Dagbók frá Gaza

Atef Abu Saif

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK

 Menningarmálaráðherra palestínskra stjórnvalda var að synda í sjónum þegar sprengjum tók að rigna yfir Gaza. Í stað þess að halda heim á Vesturbakkann ákváðu hann og sonur hans á unglingsaldri að halda kyrru fyrir, enda óraði þá ekki fyrir því sem koma skyldi. Með dagbókarskrifum sínum veitir Atef Abu Saif nístandi innsýn í baráttu Palestínumanna við að halda í lífi.

Palestínski rithöfundurinn Atef Abu Saif (f. 1973) hefur meðal annars skrifað skáldsögur, smásögur og bók um stjórnmál. Brot úr Dagbók frá Gaza hafa verið birt reglulega í vestrænum fjölmiðlum frá upphafi árása Ísraelshers á Gaza haustið 2023, og eru meðal mikilvægustu vitnisburða sem þaðan berast. Bókin er gefin út í ellefu löndum samtímis og rennur allur ágóði af sölu hennar til hjálparstarfs á Gaza.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Dagbók frá Gaza

Dagbók frá Gaza

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK