Dagur í júní
Alex Schulman
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Vidar er kennari og lentur í öngstræti í lífinu. Hann hefur verið sendur í leyfi sakaður um brot í starfi og ver dögunum í einsemd. Þegar hann finnur gamalt símanúmer sem áður tilheyrði sumarhúsi fjölskyldunnar ákveður hann að hringja og löngu látinn faðir hans svarar, dag einn í fortíðinni.
Þetta er óskiljanlegt. Vidar hringir aftur. Og aftur. Alltaf er sami fortíðardagurinn í sumarhúsinu og hann talar við foreldra sína, systur og sjálfan sig átta ára. Það er eitthvað við þennan dag sem hann verður að fá að vita og í gegnum símtölin kortleggur hann hverja stund þar til hann rekst á vegg; það er eyða í deginum, svarthol. En um leið sækir nútíminn að: Getur verið að hann hafi beitt barn ofbeldi? Og af hverju er líka eyða í minni hans í tengslum við atvikið í skólanum?
Dagur í júní er einstaklega mögnuð og grípandi saga um það sem mótar fólk í barnæsku átakanleg frásögn um áföll og ástleysi. Sögur Alex Schulmans um börn og brotnar fjölskyldur hafa farið víða og ein þeirra, skáldsagan Eftir lifendurnir, kom út á íslensku árið 2021.
Sunna Dís Másdóttir þýddi.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Dagur í júní