Dauðar sálir syngja ekki
Jussi Adler-Olsen, Line Holm, Stine Bolther
Skotheldur spennutryllir um barnslegt sakleysi og brostna drauma, ódæði, svik og ábyrgð – hröð og grípandi atburðarás, sannfærandi persónur og leiftrandi danskur húmor.
Carl Mørck hefur sagt skilið við lögregluna og einbeitir sér að glæpasagnaskrifum en gamla starfið eltir hann uppi: Hann fær í hendur hljóðupptöku sem varpar nýju ljósi á óhugnanlegt mál sem talið var leyst fyrir löngu og lætur sína fyrri félaga í Deild Q vita.
Í deildinni eru nú aðeins eftir Assad og Rose – og nýja konan, Helena, sem er einkennilega spör á upplýsingar um fortíð sína. En fleiri eiga sér leyndarmál og sum þeirra eitra út frá sér; gamlar misgerðir gleymast ekki heldur verða uppspretta beiskju og grimmilegs hefndarþorsta.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Dauðar sálir syngja ekki