Einfætta ballerínan
Inga Bjarnason
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Dásamlegur aldarspegill, í senn tragískur, fjörugur og fyndinn. Inga heillaðist snemma af leiklist og kom víða við í heimi leikhússins. Af fullri einlægni lýsir hún baráttu sinni við eigin takmörk, segir frá ástum og sorgum, sigrum og ósigrum – og leitar loks sátta við liðna tíð. Þar er fátt dregið undan.
Inga Bjarnason var borin og barnfædd við Tjarnargötu í Reykjavík en þó eins og alltaf til hliðar við það borgaralega umhverfi sem mætti henni ungri. Hún heillaðist snemma af leiklistinni og leitaði víða inngöngu í heim leikhússins. Staldraði við um hríð í tilrauna- og framúrstefnuleikhúsum álfunnar, fyrst í Danmörku, síðar Bretlandi, og heim komin lagði hún íslenskri leiklist lið sem leikstjóri um áratuga skeið.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Einfætta ballerínan