Einn, tveir og Kormákur
Jóna Valborg Árnadóttir og Elsa Nielsen
1,490 ISK
1,490 ISK
/
Kormákur hefur gaman af tölum. Svo gaman að hann telur allt sem fyrir augum ber. Oft og mörgum sinnum. En hvað gerir Kormákur þegar eitthvað virðist óendanlega mikið? Er hægt að telja upp í endalaust? Með smá hjálp áttar Kormákur sig á því að það má alltaf finna svar þó stórt sé spurt.
Einn, tveir og Kormákur er önnur sagan sem hefur verið skrifuð um þennan skemmtilega strák.
Það er afar ánægjulegt að kynna nýjan bókaflokk um Kormák frá þeim stöllum Jónu Valborgu Árnadóttur og Elsu Nielsen sem hafa áður sent frá sér Brosbókina, Vinabókina, Knúsbókina og Hetjubókina við frábærar undirtektir.
Útgáfuár: 2018
Gerð: Innbundin
Síðufjöldi: 28
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Einn, tveir og Kormákur
1,490 ISK
1,490 ISK
/