Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Ekki er allt sem sýnist

4,490 ISK

Höfundur Stefan Ahnhem

„Carl og Helene þráðu að komast i langt frí til að endurnýja sambandið. Þau fundu á netsíðum draumahús í Kaliforníu og höfðu húsaskipti við par sem vildi dvelja sumarlangt í einbýlishúsinu þeirra í sænska skerjagarðinum. En þegar þau koma til Kaliforníu bregður þeim í brún. Þetta var ekki húsið sem þau höfðu hrifist af á netinu. Og hvað skyldi þetta par, sem hafði ginnt þau þangað, ætla sér fyrir í húsinu þeirra? Sem betur höfðu þau sett upp eftirlitsmyndavélar í öllum herbergjum hússins …

Æsispennandi sálfræðitryllir sem fengið hefur frábærar viðtökur.
Bækur sænska verðlaunahöfundarins Stefans Ahnhems um Fabian Risk þykja með allra bestu glæpasögum síðari ára. Þær eru margverðlaunaðar og hafa selst í milljónum eintaka. Í þessari bók, sem slegið hefur í gegn, er hann á nýjum slóðum.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.“