Fagri heimur, hvar ert þú?

Sally Rooney

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK

 

Rithöfundurinn Alice flytur út á land og kynnist Felix, sem vinnur í vöruhúsi, og býður honum með sér í vinnuferð til Rómar. Vinkona hennar, menningarvitinn Eileen, býr í Dublin og veit alls ekki hvað hún vill. Simon er einlægur vinur þeirra vinkvenna – en hvað býr undir traustu yfirborði hans?

Alice og Felix, Eileen og Simon eru ung – en yngjast ekki. Þau þrá hvert annað meira en nokkuð, en þau svíkja hvert annað samt sem áður. Þau hafa áhyggjur af vináttunni og heiminum sem þau búa í og hvort hann sé kominn á heljarþröm, gegnsýrður af kapitalisma, trúarbrögðum, valdaójafnvægi og hamfarahlýnun.

Geta þau fundið leið til að trúa á fegurð heimsins?

Þetta er þriðja skáldsaga Sally Rooney en áður hafa komið út á íslensku Okkar á milli og Eins og fólk er flest sem sömuleiðis var vinsæl sjónvarpsþáttaröð.

 

Ingunn Snædal íslenskaði.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Fagri heimur, hvar ert þú?

Fagri heimur, hvar ert þú?

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK