Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Fávitar

5,990 ISK

Höfundur Sólborg Guðbrandsdóttir

Fávitar er samfélagsverkefni Sólborgar Guðbrandsdóttur gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi en það hófst á samnefndri Instagram-síðu árið 2016. Sólborg hefur starfað sem fyrirlesari undanfarin ár og haldið fyrirlestra fyrir þúsundir barna og unglinga þar sem hún svarar spurningum þeirra um meðal annars kynlíf, ofbeldi, samskipti, líkamann og fjölbreytileika. Verkefnið hefur verið nýtt í skólum víðs vegar um landið með góðum árangri. Átakið Fávitar birtist nú í bókaformi þar sem Sólborg hefur tekið saman spurningar sem henni hafa borist síðastliðin ár og svör við þeim.