Ferðalag Helenu
Viveca Sten
Ómótstæðileg saga um ást, von og nýtt upphaf.
Helena er í miðjum klíðum að undirbúa fimmtugsafmæli sitt og eiginmannsins, Fredriks, þegar hún kemst að því að hann hefur haldið framhjá henni. Veislan, sem átti að vera hátíð þeirra beggja, verður til þess að hún spyr sig spurningar sem hún hefur aldrei þorað að spyrja áður: Hver er hún þegar hún er ekki lengur eiginkona einhvers?
Til að hugsa sinn gang heldur Helena ein síns liðs í jógaferð til Kerala á Indlandi. Þar kynnist hún Miche, næmum, athugulum og heillandi Frakka. Hann hlustar og reiðist ekki þegar hún er honum ósammála. Með honum upplifir Helena ást án ótta. Samt getur hún varla fengið sig til að segja honum sannleikann – að hún sé enn gift.
Undir sólinni í Kerala verður ný Helena til. En valið á milli þess sem var og þess sem gæti orðið er ekki alltaf auðvelt. Hvernig vill hún lifa lífinu það sem eftir er? Hlý og uppörvandi skáldsaga um konu sem brýtur upp upp ævilangt lífsmynstur, um ást sem krefst ekki undirgefni og hugrekkið sem þarf til að lifa í sátt við sjálfan sig.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
Viveca Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkar hennar, Morðin í Sandhamn og Morðin í Åre, hafa slegið í gegn. Ferðalag Helenu er fyrsta ljúflestrarbókin sem Viveca Sten sendir frá sér.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Ferðalag Helenu