Fjarvera þín er myrkur - kilja
Jón Kalman Stefánsson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Er það ábyrgð eða hugleysi að sætta sig við örlög sín? Hér tvinnast saman yfir staði og tíma, frá Hólmavík suður eftir Evrópu, kynslóð fram af kynslóð, líf sem kannski eru jafn tíðindalítil og girðingarstaurar en halda þó öllu uppi. Kornabarn sem rétt er yfir eldhúsborð, löngu dáið þýskt skáld, trillusjómaður sem er sérfræðingur í Kierkegaard, döpur rokkstjarna, stúdína úr MR, dánir hvolpar og hver er þessi prestlærði rútubílstjóri? Sum bros geta breytt heimum og sum líf kvikna eingöngu vegna þess að heimar gengu úr skorðum.
Þetta er saga mennsku og breyskleika og hinnar óseðjandi gleymsku.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Fjarvera þín er myrkur - kilja