Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Fléttur V - Me Too

5,900 ISK

Höfundur Elín Björk Jóhannsdóttir, Kristín I Pálsdóttir, Þorgerður H Þorvaldsdóttir

Fimmta hefti ritraðar RIKK er tileinkað #MeToo og baráttu kvenna gegn áreitni og ofbeldi. Í bókinni nálgast höfundar efnið frá fjölbreytilegu sjónarhorni. #MeToo er sett í sögulegt samhengi innan kvennahreyfingarinnar.

Fjallað er um hvernig ótti kvenna við kynferðisofbeldi birtist í íslenskum bókmenntum. Frásagnir kvenna sem störfuðu sem ráðskonur á síðari hluta 20. aldar af kynbundnu ofbeldi eru teknar til skoðunar. Sjónum er beint að því viðhorfi sem konur mæta í heilbrigðiskerfinu og fjallað um áhrif kynferðisofbeldis á heilsu þeirra. Auk þess er vikið að hugmyndum ungra karlmanna um kynheilbrigði og #MeToo. Rýnt er í sálrænar afleiðingar margþættrar mismununar í garð fatlaðra kvenna og það kerfislæga misrétti sem #MeToo-sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi afhjúpa. Spurt er hvort #MeToo-hreyfingin bjóði upp á möguleika á breyttum mannskilningi og lausn undan hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar og rýnt er í mótstöðuna gegn #MeToo.

Fléttur er ritröð RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Fléttum er ætlað að kynna niðurstöður jafnréttisrannsókna og koma á framfæri fræðilegum greinum um kvenna- og kynjafræði, femínisma og jafnréttismál í víðum skilningi.