Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Flökkusaga

3,490 ISK

Höfundur Lára Garðarsdóttir

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Eftir miklar breytingar í heimalandi Ísoldar og mömmu hennar, neyðast birnurnar til að
flýja. Þær leggja í langa ferð í leit að nýjum heimkynnum en mæta óvæntum erfiðleikum þegar þær loksins nema land.

Munu brúnu birnirnir taka hvítu birnurnar í sátt?

Flökkusaga er hugljúf bók sem lætur engan ósnortin. Sagan af birnunum þreifar á mörgum málum sem við þekkjum vel úr samtíma okkar á einstaklega litríkan og
einlægan máta. Hér er bók sem býr yfir fallegum boðskap og á erindi við lesendur á öllum aldri. Sagan sýnir okkur á hjartnæman hátt hversu mikilvægt er að eiga góða að til að takast á við breytingar, fordóma, söknuð og að fóta sig í nýju umhverfi.