FNÆS
Lóa H. Hjálmtýsdóttir
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Fnæs
Hér birtast á mjög mörgum blaðsíðum fimm ár af fnæsi yfir öllu frá hversdeginum til heimsmála. Stundum er fnæst af gleði, stundum af reiði og stundum af uppgjöf. Myndasögurnar í bókinni spegla sameiginlega reynslu samfélags sem er oft flókin en oft svo fyndin. Ófullkomleiki manneskjunnar, uppeldi, heimur á vonarvöl, hópefli, menningararfurinn, rútína, sérviska og jólin - ekkert er Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur óviðkomandi. Og við megum alltaf leyfa okkur að hlæja smá, meira að segja að hlutum sem eru óþolandi.
FNÆS er stór og vegleg bók sem telur 320 síður.
Með síkvikum huga rannsakar Lóa bæði stóru og litlu brestina í samfélaginu okkar og í tilverunni allri. Hún sér hið óbærilega og gerir svo úr því eitthvað óbærilega fyndið.
Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
FNÆS