Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Frjáls

3,990 ISK

Höfundur Lea Ypi

Lea Ypi ólst upp í Albaníu sem þá var eitt einangraðasta land heims. Hugmyndafræði kommúnismans var upphaf og endir alls, og það var nánast ómögulegt að heimsækja landið – hvað þá að yfirgefa það. Biðraðir, skortur, aftökur og njósnir voru daglegt brauð en samfélagsandinn var sterkur; allir voru jafningjar, nágrannar hjálpuðust að og fólk bar von í brjósti.

Í desember 1990 breyttist allt. Styttum leiðtoganna var steypt af stalli og fólk mátti skyndilega kjósa, klæðast og trúa hverju sem það vildi. En verksmiðjum var lokað hverri af annarri og fólk flúði þúsundum saman. Svindlarar keyrðu landið í þrot, óeirðir brutust út og eftir því sem vonbrigðin jukust fór Lea að velta því sífellt meira fyrir sér hvað fælist í rauninni í því að vera frjáls.

 Frjáls er heillandi ævisaga um uppvöxt á óróatímum. Með skarpskyggni og húmor að vopni varpar höfundur ljósi á fortíðardrauga og framfarabrölt, hugsjónir og veruleika – og síðast en ekki síst fólkið sem lenti í brimróti sögunnar.

Lea Ypi er prófessor við London School of Economics. Verð­­­launabókin Frjáls er fyrsta bók hennar skrifuð fyrir almenning og hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Eyrún Edda Hjörleifsdóttir þýddi.