Fyrsta skiptið
Elías Rúni
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Þegar ég horfði í spegilinn þennan morgun var ég eins og áður. Það hafði ekkert breyst. Ég var með sama hárið, sama andlitið, sömu augun ... og þó, kannski ekki sömu augun – því að þau sáu eitthvað annað. Þau sáu Elías. Fyrsta skiptið er saga um gleðina sem felst í því að finna sinn stað í eigin líkama.
Elías er tuttugu og átta ára teiknari sem hefur aldrei séð sjálfan sig í speglinum. Hann leggur upp í ferðalag þar sem hann tekst á við skömm, yfirstígur innbyggða fordóma, kemur út fyrir sjálfum sér, skiptir um nafn og fornafn og lærir að tala um sig á nýjan hátt.
Fyrsta skiptið er myndasaga um gleðina sem felst í því að finna sinn stað í eigin líkama. Leiðin að því er ekki átakalaus en Elías teiknar upp hvernig hægt er að horfa í spegil og sjá sjálfan sig í fyrsta skiptið.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Fyrsta skiptið