Gerðu eins og ég segi
Áslaug Kristjánsdóttir
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Baldur og Nanna virðast lifa hinu fullkomna lífi, hann lögmaður, hún innanhússhönnuður á leið aftur út á vinnumarkaðinn en hvað gerist þegar hjónabandið verður fyrir ágjöf? Sambandsráðgjafinn Karitas hefur sjálf átt í stuttum samböndum en öllum hefur lokið áður en ástin kom til sögunnar.
Undir fáguðu yfirborði búa óuppfylltar þrár, svik, skömm og valdabarátta þar sem mörkin milli ástar, losta og þess að vera við stjórnvölinn verða æ óljósari. Hversu langt er hægt að ganga í leit sinni að hamingju án þess að glata sjálfum sér og þeim sem standa manni næst?
Gerðu eins og ég segi er fyrsta skáldsaga Áslaugar Kristjánsdóttur en hún hefur áður sent frá sér metsölubókina Lífið er kynlíf handbók kynfræðings um langtímasambönd.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Gerðu eins og ég segi