Gleym mér ei
Stefán Máni
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Á hrekkjavökukvöldi, undir stjörnubjörtum himni, er ekið á sjö ára stúlku á reiðhjóli. Bílstjórinn flýr af vettvangi og síðan er eins og jörðin gleypi hann. Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson lofar foreldrum stúlkunnar að hann muni finna þann seka, sama hvað það kosti. „Mögnuð spenna frá meistara íslensku glæpasögunnar“ / Gunna Dís, fjölmiðlakona
Árin líða og Hörður glímir við önnur krefjandi sakamál, sem og áskoranir í einkalífinu. Sambúð hans og Bíbíar er enginn dans á rósum. Jafnvel einföld fyrirmæli um að fara út í búð og kaupa kóríander reynast Herði ofviða og honum tekst á sinn einstaka hátt að klúðra einföldustu hlutum.
En hann gleymir aldrei loforðinu og stúlkunni sem dó.
Þegar tíminn virðist vera að renna út og öll sund að lokast fara þræðir loks að tengjast og myndin að skýrast.
En er það of seint?
Hvaða verð greiðir sá sem flýr eigin samvisku? Eða sá sem neitar að sleppa takinu á gömlu sakamáli?
Gleym mér ei er fjórtánda bókin í hinni geysivinsælu glæpaseríu Stefáns Mána um sérlundaða lögreglumanninn Hörð Grímsson. Mögnuð spennusaga um samvisku, sekt og loforð sem verður að efna.
„Hörður Grímsson er með eftirminnilegustu og skemmtilegust karakterum í íslenska glæpasagnaheiminum og þótt víðar væri leitað.“ / Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðið
„Stefán Máni er meistari stemningar og nístandi spennu.“ / Óttarr Proppé, bóksali og tónlistarmaður
„Ég elska Hörð Grímsson, hann er dásamleg týpa.“ / Kolbrún Bergþórsdóttir, bókmenntagagnrýnandi
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Gleym mér ei