Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Goðheimar 1 - Úlfurinn bundinn

3,490 ISK

Höfundur Peter Madsen

Aðdáendur myndasagnaflokksins Goðheima eru ófáir en bækur þær nutu gríðarlegra vinsælda hér á landi á síðari hluta síðustu aldar. Nú hefur verið ákveðið að endurútgefa seríuna vinsælu, vegna fjölda áskoranna. Fyrsta bókin ber heitið Úlfurinn bundinn en þar segir af ævintýrum þrumuguðsins Þórs.

Þrumur og eldingar lýsa upp himininn í Miðgarði og skyndilega birtist þrumuguðinn Þór á vagni sínum. Með í för er Loki hinn lævísi og klækjabrögð hans verða til þess að mennsk systkin, Þjálfi og Röskva, fylgja guðunum til Ásgarðs. Þar er voðinn vís því sjálfur Fenrisúlfur gengur laus …

Höfundur bókanna er Peter Madsen en Guðni Kolbeinsson þýddi.