Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands

Jónas Guðmundsson

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK

Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands hefur að geyma leiðarlýsingar hátt í 50 stuttra gönguleiða í námunda við þekkta áfangastaði í íslenskri náttúru. Oft má auðveldlega og á stuttum tíma færa sig frá fjölförnum stöðum og finna kyrrðina á göngu á fáfarnari slóðum rétt við náttúruperlur landsins. Það er á færi flestra að ganga leiðirnar í bókinni enda eru þær flestar stuttar og auðvelt er að koma þeim inn í ferðadagskrána. Leiðirnar eru fjölbreyttar og liggja um fjöll og gil, að fallegum fossum og sögulegum minjum, meðfram ám og vötnum og um fjölskrúðugt dýra- og plöntulíf.

Jónas Guðmundsson er leiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur sem varið hefur óteljandi stundum á ferð um náttúru Íslands. Hann er höfundur þriggja metsölubóka um gönguleiðir vítt og breitt um land. 

Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands er ómissandi ferðafélagi þegar leggja skal land undir fót. 

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands

Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK