Grunur

Ashley Audrain

3,990 ISK
3,990 ISK

Grunur er mögnuð og taugatrekkjandi skáldsaga um martröð hverrar móður – að geta ekki elskað barnið sitt. Og um líðan konu sem enginn trúir.

Þegar Blythe eignast dóttur er hún staðráðin í að veita henni alla þá ást og hlýju sem hún fór sjálf á mis við í bernsku. En í þreytuþokunni fyrstu mánuðina eftir fæðinguna sannfærist hún um að eitthvað sé afbrigðilegt við hegðun dótturinnar – hún sé ekki eins og önnur börn.
Eða er það hún sjálf sem eitthvað er að? Manninum hennar finnst hún vera ímyndunarveik og með tímanum fer hún að efast æ meira um dómgreind sína og geðheilsu. Er ættgengt að vera óhæf móðir? Blythe er alltaf á nálum um að eitthvað hræðilegt gerist. Daginn sem það gerist verður óbærilegur grunur að ískaldri vissu.

Þessi fyrsta bók kanadíska rithöfundarins Ashley Audrain kom út í ársbyrjun 2021, sló strax í gegn og komst á fjölda metsölulista. Ragna Sigurðardóttir þýðir.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Grunur

Grunur

3,990 ISK
3,990 ISK