Hagnýta pottaplöntubókin
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Pottaplöntur á heimilum gefa bæði hlýlegt yfirbragð og bæta andrúmsloftið.
Í Hagnýtu pottaplöntubókinni er því lýst á einfaldan og skýran hátt, skref fyrir skref, hvernig hægt er að rækta blómlegar og heilbrigðar pottaplöntur og tryggja að þær dafni sem best allan ársins hring.
Fjallað er um 175 tegundir og góð ráð gefin um umhirðu, meðal annars hvaða birtu- og rakastig þær þurfa og hvaða næring er best fyrir þær. Ýmsar hugmyndir eru í bókinni að frumlegri uppstillingu plantnanna og sýnt hvernig má útbúa skilrúm með klifurplöntum, blómahengi og blómakrans úr þykkblöðungum, svo fátt eitt sé nefnt.
Hagnýta pottaplöntubókin er bók fyrir alla sem langar til að lífga upp á heimilið með gróskumiklum og fallegum plöntum.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Hagnýta pottaplöntubókin