Hartman stórverslunin - Loforð í ljósaskiptunum

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Um bókina

Eftir nokkur stormasöm ár í London snýr Vera Hartman aftur heim til Stokkhólms með eitt markmið: að sanna að hún eigi heima í fjölskyldufyrirtækinu – hinni víðfrægu Hartman-stórverslun. Hún er varla komin inn fyrir dyrnar þegar hún kemst að því að verslunin er á heljarþröm og amma hennar hefur tekið upp samningaviðræður við Elias Johansson, framkvæmdastjóra lágvöruverðsverslunar, sem nýtur mikillar velgengni. Elias er með sína eigin áætlun: hann ætlar að hefna sín á Hartman-­fjölskyldunni fyrir það sem hún hefur gert fjölskyldu hans. Fljótlega kemur í ljós að í áætlun sinni sá hann ekki Veru fyrir. Hún er sjálfsörugg og klár og það reynist honum næstum ómögulegt að leiða hana hjá sér. Viðskipti og málefni hjartans eru flókin blanda og þegar Elias og Vera fara að dragast hvort að öðru verður sífellt meira í húfi fyrir þau bæði.

Urður Snædal íslenskaði.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Hartman stórverslunin - Loforð í ljósaskiptunum

Hartman stórverslunin - Loforð í ljós...

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK