Heiðmyrkur

Ingi Markússon

5,490 ISK
5,490 ISK 0 ISK

Áratug eftir atburði Svikabirtu sækja illir draumar á Dimmbrá. Djúpt í iðrum jarðar kynnist hún leyndustu kimum seiðsins. Hnikar reikar um heimskautið uns hann finnur ný heimkynni langt í suðri; óafvitandi kallar hann Dimmbrá til sín með ófyrirséðum afleiðingum. Indra vex úr grasi á Bifröst uns hún stígur niður, þess albúin að leggja jörðina að fótum sér. Í bakgrunni er uppruni stjarneyga fólksins, útdauði mannkynsins og endalok skuggabrúarinnar.

Í Heiðmyrkri lýkur Ingi Markússon sögunni sem hófst með Skuggabrúnni og hélt áfram í Svikabirtu, bókum sem vakið hafa verðskuldaða athygli og lof. Heið¬myrkur bindur þríleikinn saman í myrkri frásögn á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar – sögu um vináttuna og hefnd¬ina; lífið og eilífðina; vitundina og vélina; ljósið, myrkrið og skugga mannsins.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Heiðmyrkur

Heiðmyrkur

5,490 ISK
5,490 ISK 0 ISK