Heimilishjálpin sér allt
Freida McFadden
Þriðji hörkuspennandi tryllirinn um Heimilishjálpina.
Þið hljótið að vera nýju nágrannarnir okkar! hrópar frú Lowell og veifar yfir hvíta grindverkið. Ég gríp um hönd dóttur minnar og brosi til baka, en um leið og frú Lowell sér eiginmann minn verður hún skrítin á svipinn. Á þeirri stundu gef ég sjálfri mér loforð. Loksins eigum við fallegt heimili. Fortíðin er langt, langt að baki. Ég og maðurinn minn söfnuðum í mörg ár til að geta gefið börnunum okkar það líf sem þau eiga skilið. Og ég mun gera allt til að halda því þannig
Þótt ég sé tortryggin gagnvart Lowell-hjónunum er kvöldverðarboð hjá þeim tækifæri til að kynnast fólki. Heimilishjálpin þeirra opnar dyrnar, hún er með hvíta svuntu og hárið bundið í þéttan hnút. Ég þekki vel hvernig er að vera í hennar sporum. En kalt augnaráð hennar veldur mér óróleika
Þerna Lowell-hjónanna er ekki það eina undarlega við götuna okkar. Mér finnst ég sjá skuggalega veru fylgjast með okkur. Eiginmaður minn laumast út seint á kvöldin. Og þegar ég hitti konuna sem býr beint á móti fara orð hennar um mig eins og kuldahrollur: Passaðu þig á nágrönnunum.
Gerði ég hræðileg mistök með því að flytja fjölskylduna hingað? Ég hélt að ég hefði skilið myrkustu leyndarmálin mín eftir. Getur þessi rólega úthverfagata verið hættulegasti staðurinn af þeim öllum?
Frá metsöluhöfundinum Freidu McFadden kemur næsta bók í hinni ótrúlega snúnu, spennuþrungnu og alþjóðlega vinsælu Heimilishjálpar-seríu. Hægt er að njóta bókarinnar sjálfstætt en það er ekki hægt að leggja hana frá sér fyrr en öll kurl eru komin til grafar.
Þýðing Ingunn Snædal
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Heimilishjálpin sér allt