Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Héragerði

3,990 ISK 2,990 ISK

Höfundur Lóa H. Hjálmtýsdóttir

Tvíburarnir Inga og Baldur eru alveg að komast í páskafrí. Framundan sjá þau fyrir sér talsvert súkkulaðiát og almenna flatmögun en í ljós kemur að þau eiga að gista hjá ömmu sinni sem er nýflutt til landsins í hið dularfulla byggðarlag Héragerði. Inga tekur fréttunum fagnandi enda sýna útreikningar hennar fram á að amman hlýtur að skulda þeim páskaegg langt aftur í tímann. Baldur er ekki jafnspenntur og kvíðahnútur gerir sig heimakominn í maga hans. Það kemur þó fljótt í ljós að ferðalagið felur í sér alls konar ævintýri; riddara í næsta garði, strætóferð í prumpufýlu, nýja vini og meira að segja nýja fjölskyldumeðlimi.

Bókinni fylgja alls konar aukahlutir! Kíktu í vasann aftast til að svala forvitninni!

Héragerði fékk Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir bestu myndlýsingu og bókin var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunananna 2022!

Héragerði er bráðskemmtileg, fyndin, litrík og falleg bók um systkini sem eru jafn ólík og dagur og nótt. Hún er sjálfstætt framhald Grísafjarðar sem var tilnefnd til barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs, Íslensku bókmenntaverðlaunanna og var valin besta barnabók ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.

 

Hér má lesa umfjöllun Lestrarklefans um Héragerði þar sem meðal annars segir: „Hvað er það við Grísafjörð og Héragerði sem er svona yndislegt? Ætli það sé ekki bara hve jarðbundnar bækurnar eru, hve sannar og trúar sjálfum sér og raunveruleika íslenskra barna. Þær minna okkur líka á að í heiminum er margt fallegt, stundum þurfum við bara að opna augun og horfa í kringum okkur til að sjá töfrana.“

Hér má lesa frábæran bókadóm Fréttablaðsins um Héragerði þar sem meðal annars segir: „Héra­gerði er af­skap­lega skemmti­leg, lit­rík og fjörug saga sem sendir gleði­geisla inn í hug og hjarta lesandans.“

Héragerði fékk fjórar stjörnur í bókadómi Morgunblaðsins