Hin sanna náttúra

2,990 ISK
2,990 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Í bókinni eru útskýringar með ljósmyndum á mismunandi hugleiðsluaðferðum Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan og fjallað um einstaka þætti þeirrar tegundar jóga. Hugleitt er á fallegum stöðum úti í náttúrunni.

Bókin vísar þér veginn að fallegum stöðum sem veita þér stuðning þegar þú hugleiðir. Með því að anda og endurtaka möntrur á ferðalagi þínu um hina dásamlegu náttúru gefst þér tækifæri til að upplifa fegurð eigin sálar.

Höfundurinn, Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir er jógakennari, heilari og bowentæknir og sótti menntun sína til innlendra og erlendra kennara. Hún hefur kennt einstaklingum og hópum Kundalini jóga, haldið fyrirlestra og námskeið víða um land. Hún hefur einnig kennt jóga í vatni og stundað kennslu utandyra yfir sumartímann. Í framhaldi af því tók hún að ferðast um landið í leit að áhrifamiklum stöðum til að stunda jóga og hugleiðslu, bókin er afrakstur af því ferðalagi.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Hin sanna náttúra - Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir

Hin sanna náttúra

2,990 ISK
2,990 ISK 0 ISK