Hinir ósýnilegu

Lone Theils

🚚 Ships across Europe from Reykjavík
❤️ Popular with travelers to Iceland

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK
Í fríi í Danmörku hittir blaðamaðurinn Nora Sand þekktan lögmann sem hún hefur lengi viljað taka viðtal við. Daginn eftir finnst maðurinn myrtur. Þegar Nora fer að grafast fyrir um ástæður morðsins kemur í ljós að lögmaðurinn stýrði rannsókn á víðtæku barnaníðsmáli í Bretlandi þar sem grunur leikur á að háttsett fólk hafi komið við sögu.
Nora kemst í samband við nokkur fórnarlömb sem lýsa skelfilegum áhrifum níðingsverkanna og Noru finnst að hún verði að segja sögu þeirra. En áhrifamikil öfl, sem eru vön að hafa sitt fram í krafti auðs og valda, beita öllum ráðum til að reyna að þagga niður í henni.
Að lokum á Nora ekki annarra kosta völ en að horfast í augu við sína eigin verstu martröð ...
Bækurnar um Noru Sand hafa slegið í gegn og hafa verið gefnar út í 16 löndum. Hinir ósýnilegu er fimmta bókin um hana sem kemur út á íslensku. Hinar fjórar eru Stúlkurnar á Englandsferjunni, Kona bláa skáldsins, Nornadrengurinn og Þagnarbindindi.
Lone Theils (f. 1971) var lengi fréttaritari danskra blaða í London en býr nú í Danmörku og sinnir ritstörfum.
„Afar vel sögð saga, einföld og blátt áfram. Virkilega grípandi söguþráður og spennandi.“
Bokblogger.dk
„Ég elska Noru Sand-bækurnar, hraðann í frásögninni, plottin og kraftinn.“
Femina
„Æsispennandi frá upphafi til enda. Ég naut þessarar skáldsögu til botns.”
Søndag 

WHY BUY FROM SALKA

Salka is an independent bookstore based in Reykjavík, Iceland, specializing in Icelandic literature, culture, and curated international titles about Iceland.

We ship selected Icelandic books across Europe for readers interested in Icelandic culture, literature, and storytelling.

Recently viewed

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Hinir ósýnilegu

Hinir ósýnilegu

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK