Höggið
Unnur Lilja Aradóttir
Ung kona vaknar á sjúkrahúsi með höfuðáverka og hefur auk þess misst minnið. Hún þekkir hvorki tilveru sína né sjálfa sig en fljótlega fær hún á tilfinninguna að eitthvað sé ekki eins og það eigi að vera. Hún leggur upp í ferðalag á vit fortíðar sinnar viðsjárvert ferðalag þar sem skelfilegir atburðir afhjúpast smám saman.
Unnur Lilja Aradóttir fékk glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir þessa kynngimögnuðu og grípandi sögu þar sem ekkert er sem sýnist. Það eru Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson sem standa að verðlaununum ásamt bókaútgáfunni Veröld.
Í umsögn dómnefndar um söguna segir m.a.: Höggið er óvenjuleg spennusaga þar sem undarleg tilfinning grípur lesandann strax á fyrstu síðum bókarinnar. Í lifandi en látlausum texta og hnitmiðaðri frásögn nær höfundurinn föstu taki á lesandanum.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Höggið