Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Hulduheimar - huldufólksbyggðir á Íslandi

2,990 ISK

Höfundur Símon Jón Jóhannsson

Bókin Hulduheimar hefur að geyma um eitt hundrað huldufólkssögur úr öllum landshornum. Farinn er hringurinn kringum landið og sagðar huldufólkssögur úr flestum héruðum.

Sögurnar greina frá litríkum samskiptum huldufólksins við íbúa mannheima og bregða upp myndum úr veröld sem oftast var hulin augum, falin á bak við standberg og klettaþil.

Ljósmyndir og annað myndefni fylgir hverjum stað auk staðbundinna korta.