Hús andanna
Isabel Allende
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Hús andanna
Heillandi og stórbrotin ættarsaga þar sem litríkar persónur, lífs og liðnar, taka þræði örlaganna í eigin hendur og missa þá á víxl. Clara del Valle, Esteban Trueba, afkomendur þeirra, tengdafólk og nágrannar verða ljóslifandi í leiftrandi skemmtilegri frásögn sem markast af ósviknu suðuramerísku töfraraunsæi. Í þessari undraverðu sagnaveröld eru ættarstolt, yfirskilvitlegir eiginleikar og holdlegar ástríður ráðandi öfl í lífi fólksins sem tekst á við umrót og átök í landi sínu á viðsjárverðum tímum; saga fjölskyldunnar verður þjóðarsaga, fortíðin endurómar í nútíðinni.
Bókin birtist fyrst á spænsku 1982, vakti strax mikla athygli, vann til fjölda verðlauna og var fljótlega þýdd á tugi tungumála. Rómuð íslensk þýðing Thors Vilhjálmssonar kom fyrst út 1987. Isabel Allende er fædd í Chile 1942 en hraktist í útlegð við valdarán hersins 1973 þegar föðurbróðir hennar, Salvador Allende forseti, var myrtur. Hún býr nú í Kaliforníu. Hús andanna var fyrsta skáldsaga hennar og sú sem náð hefur langmestri hylli og útbreiðslu. Sagan var kvikmynduð 1993.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Hús andanna