Húslestur - ritgerðir

Salka - bókaútgáfa og bókabúð

4,690 ISK
4,690 ISK

Í fábreytni bændasamfélagsins gat húslesturinn rofið einangrun afdalsins og opnað glugga inn í framandi heima. Með því að leita fanga víða, og gjarnan úr alfaraleið, færir Magnús Sigurðsson þann gamla, íslenska sið til nútímahorfs. Í bókmenntatextum sem leika á mörkum sannleika og skáldskapar, arfs og umbyltingar, alvöruþunga og „absúrd kómíkur“, er látið reyna á tjáningargetu ritgerðaformsins sem skáldlistar.

Viðfangsefni þessara veraldlegu húslestra eru líka fjölbreytt. Meðal annars er sagt frá samstarfi bandarísku skáldkonunnar Marianne Moore við bílaframleiðandann Ford, afdrifaríkri bommertu 19. aldar rúnafræðingsins Finns Magnússonar, upphafi nýrrar absúrdistahreyfingar vestur á Bolungarvík, íslenskri tungu sem harmabót Fjölnismannsins Konráðs Gíslasonar og fjallað um „slaufanir“ fyrr á öldum.

Húslestur ber keim af fyrri bókum höfundar, Tregahandbókinni og Íslenskri lestrarbók, framsæknum verkum þar sem nýstárlegri tjáningu er fundinn búningur í bókmenntaformum fyrri tíma.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Húslestur - ritgerðir

Húslestur - ritgerðir

4,690 ISK
4,690 ISK