Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Hvað ef? - rafbók ePub

3,990 ISK

Höfundur Valur Gunnarsson

Hvað ef Róm hefði ekki fallið, Hitler hefði unnið, Bítlarnir hefðu aldrei verið til, Lenín hefði lifað lengur, ekkert hrun orðið á Íslandi, víkingar hefðu sigrað heiminn, Jörundur hefði hengt einhvern og fleiri sagnfræðilegar vangaveltur um það sem hefði getað orðið.

Í þessari frumlegu bók er kafað í lykilatburði í mannkynssögunni og skoðað hvernig þeir hefðu hugsanlega getað farið öðruvísi og hvað hefði þá getað gerst í framhaldinu. Lesandinn er í fimmtán köflum leiddur í ferðalag sem teygir sig allt frá gullaldarárum Rómarveldis til Þýskalands í fyrri og seinni heimsstyrjöldunum, frá Íslandi á tímum víkinga, hundadagakonungs og útrásarvíkinga til fallvaltra Sovétríkjanna og frá Bítlunum til forsetakosninga nýliðinna ára í Bandaríkjunum.

Valur Gunnarsson hefur starfað sem blaðamaður í 20 ár og hefur fjallað um allt frá átökum á Austurvelli til vígvalla Úkraínu. Hann lærði sagnfræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Helsinki, Humboldt háskóla í Berlín og Kúras stofnunina í Kænugarði jafnt sem ritlist í Belfast og Norwich. Hann hefur áður sent frá sér fjórar bækur, þar á meðal skáldsöguna Örninn og fálkann sem fjallar um hvað hefði gerst ef nasistar hefðu hernumið Ísland, svo og bókina Bjarmalönd sem greinir frá arfleifð Sovétríkjanna í Austur-Evrópu. Hann hefur starfað fyrir fjölmarga íslenska miðla, til dæmis Ríkisútvarpið, Fréttablaðið, Stundina og Reykjavik Grapevine sem hann ritstýrði, og erlenda miðla á borð við The Guardian, Associated Press og Berliner Zeitung.

 

Hér má heyra Val fjalla um Hvað ef? í Bítinu á Bylgjunni

Hér má heyra Val fjalla um Hvað ef? á Morgunvaktinni á Rás 1