Í eldhúsi Evu
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Í eldhúsi Evu er þriðja matreiðslubók Evu Laufeyjar. Í henni má finna yfir hundrað uppskriftir að girnilegum réttum fyrir öll tilefni. Uppskriftirnar eru fjölbreyttar og afar aðgengilegar. Það er á allra færi að töfra þær fram.
Matur er ekki bara matur í mínum augum heldur er hann sameiningartákn fjölskyldu og vina. Eldamennskan er eins og allt annað; ef maður sýnir henni ást og umhyggju þá er líklegt að útkoman verði stórgóð. Ég hef safnað saman mínum eftirlætis uppskriftum í langan tíma og þær birtast nú hér á síðum þessarar bókar. Hver einasta þeirra á sérstakan stað í hjarta mínu og ég vona að þið njótið vel.
Bókina prýða fallegar ljósmyndir eftir Heiðdísi Guðbjörgu Gunnarsdóttur.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Í eldhúsi Evu