Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Í reiðuleysi í París og London

3,490 ISK

Höfundur George Orwell

Nafn enska rithöfundarins George Orwell þekkir nánast hvert mannsbarn enda liggja eftir hann einhver mögnuðustu ádeiluverk 20. aldarinnar, skáldsögurnar 1984 og Dýrabær, sem jafnan er skipað í flokk sígildra heimsbókmennta.

Í reiðuleysi í París og London kom út árið 1933, fyrsta bókin sem Orwell fékk útgefna. Hér segir af lífi í fátækt og óvissu, samfélagi sem hulið er augum borgarastéttarinnar og þótt ekki hafi fengist úr því skorið að hve miklum hluta höfundur rekur sanna atburði og hvar hann hefur skáldað í eyðurnar er ljóst að Orwell sækir margt í eigin reynslu. Frásögnin leiftrar því af lífi, lýsingar á fólki og atburðum eru fullar af kímni og höfundur lýsir af skarpskyggni óvæntum fylgifiskum örbirgðarinnar og áhrifum hennar á mannlífið.

Uggi Jónsson hefur skrifað inngang að eigin þýðingu á bókinni þar sem hann fjallar um höfundarferil Orwells, hugsjónir hans og tilurð þessa verks.