Innanríkið - Aðfangadagar
Bragi Ólafsson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Höfundur lokast inni í yfirgefinni byggingu í Austurbænum en áður en það gerist nær hann að fanga ýmislegt og koma í orð. Hann veit stundum ekki hvort hlutir verði til í höfði hans eða séu aðfengnir – eða hvort munur sé á þessu tvennu. Bráðskemmtilegt sjálfstætt framhald af Innanríkið – Alexíus.
Bragi Ólafsson er fæddur í Reykjavík árið 1962. Fyrsta bók hans, ljóðabókin Dragsúgur, kom út 1986. Meðal skáldsagna Braga eru Hvíldardagar, Samkvæmisleikir, Fjarveran og Sögumaður. Fyrir tveimur árum kom út bók hans Innanríkið – Alexíus, og er þessi bók hér, Innanríkið – Aðfangadagar, sjálfstætt framhald. Á þessu ári kemur einnig út ljóðaúrval Braga, Á horni Bayswater Road og Lækjargötu – 100 og eitthvað ljóð, 1986–2026.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Innanríkið - Aðfangadagar