Íslandsbók barnanna - 10 ára afmælisútgáfa
Linda Ólafsdóttir, Margrét Tryggvadóttir
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
6,990 ISK
6,990 ISK
0 ISK
/
Íslandsbók barnanna er falleg og fræðandi bók um flest það sem einkennir eldfjallaeyjuna okkar. Fjallað er í máli og myndum um fjörur og fjallstinda, fiska og fugla, pöddur og blóm, þjóðgarða, jökla og eyjar, vötn og sanda, ár og fossa og margt, margt fleira – vetur, sumar, vor og haust.
Bókin, sem er hér í nýrri og uppfærðri útgáfu, hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar, meðal annars Fjöruverðlaunin, sæti á heiðurslista IBBY-samtakanna vegna myndanna og tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, auk þess sem teiknarinn hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkur fyrir myndirnar.
Margrét Tryggvadóttir ritar aðgengilegan texta sem öll fjölskyldan getur lesið saman og blæbrigðaríkar myndir Lindu Ólafsdóttur gera bókina að sannkölluðu listaverki.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Íslandsbók barnanna - 10 ára afmælisú...
6,990 ISK
6,990 ISK
0 ISK
/