Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Íslensk úrvalsljóð

2,990 ISK

Höfundur Guðmundur Andri Thorsson valdi

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Í þessari bók eru íslensk úrvalsljóð en hún geymir samt ekki úrval íslenskra ljóða. Þetta eru ekki bestu ljóð sem ort hafa verið á íslensku – aðeins örlítið sýnishorn af þeim mikla ljóðaauði sem við eigum. Allt eru þetta gömul og sígild íslensk ljóð sem eiga hér í samræðum og jafnvel andsvörum því að ljóðunum er raðað efnislega en hvorki í tímaröð né eftir höfundum.

Hér eru ljóð alveg frá elstu tíð og fram á 20. öld; þau ná úr grárri forneskju Eddukvæðanna og til hinna síðustu ljóðskálda hér á landi sem ortu ljóð sín að mestu ósnortin af formbyltingu 20. aldarinnar.

Þröngt er skorinn stakkurinn í svona kveri, enda til þess hugsað að láta liggja einhvers staðar á góðum stað þar sem gott er að eiga ljóðastund með sjálfum sér, blaða í, lesa eitthvað fallegt og gott, láta streyma til sín töfrana sem leynast milli línanna í ljóðunum okkar gömlu.

Guðmundur Andri Thorsson valdi.