Jakob: Hildur #3

Satu Rämö

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

4,890 ISK
4,890 ISK 0 ISK
Veturinn leggst yfir Ísafjörð, jólin nálgast. Eftir áratuga aðskilnað er Hildur loks komin í samband við aðra systur sína, Björk, en um hina, Rósu, veit hún ekki neitt og Björk er þögul sem gröfin. Jakob, félagi Hildar í lögreglunni, er órólegur vegna forræðisdeilu sem hann stendur í og býr sig undir ferð til Finnlands þar sem réttað verður í málinu.
 
Þegar illa leikið lík finnst við laxeldisker í grennd við bæinn eru Hildur og Jakob kölluð til en rannsókn er ekki fyrr hafin en framið er annað ofbeldisverk sem virðist tengjast því fyrra, og svo það þriðja og fjórða. Alls staðar koma dýr og dýravernd við sögu og – merkilegt nokk – íslensku jólasveinarnir. Hver stendur að baki þessu öllu?
 
Leikurinn berst ekki aðeins víða um Ísland heldur líka til Noregs og Finnlands, og hvarvetna lendir okkar fólk í óvæntum aðstæðum þegar ótal þræðir sögunnar vindast hver um annan.
 
Jakob er þriðja saga hinnar finnsku Satu Rämö um ísfirsku lögreglukonuna Hildi og fólkið í kringum hana. Bækurnar hafa komið út í mörgum löndum við miklar vinsældir og sjónvarpsþættir verið gerðir eftir fyrstu bókinni.

Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Jakob eftir Satu Ramö

Jakob: Hildur #3

4,890 ISK
4,890 ISK 0 ISK