Jeppar í lífi þjóðar - ný
Örn Sigurðsson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Samgöngubylting varð á Íslandi um miðja síðustu öld þegar þúsundir Willys-jeppa streymdu að hliðum gömlu herjeppanna, og brátt renndu Landróverar og Rússajeppar í hlað. Síðar bættust við enn fleiri gerðir, Gipsy, Scout og Bronco, og loks fjölbreytt úrval japanskra jeppa. Jeppinn greiddi leiðir um klungur og torfærur, enda með drif á öllum hjólum, og færði ferðafrelsi jafnt að sumri sem vetri.
Jeppar í lífi þjóðar bregður lifandi ljósi á þennan merkilega en lítt kannaða kafla íslenskrar samgöngusögu í máli en þó aðallega 700 einstæðum ljósmyndum sem koma nú margar í fyrsta sinn fyrir almannasjónir. Þetta er ómissandi bók fyrir bílaáhugamanninn og raunar alla þá sem unna ferðum um úfið landið.
Örn Sigurðsson hefur hlotið mikið lof fyrir bílabækur sínar sem eru orðnar átta talsins, þar á meðal metsölubækurnar Króm og hvítir hringir, Bílamenning og Bílar í lífi þjóðar.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Jeppar í lífi þjóðar - ný