Jól í Múmíndal

Tove Jansson, Alex Haridi, Cecilia Davidsson

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK

Jólin eru að koma og hér liggið þið bara hrjótandi! Það gengur ekki!

Einn bjartan desembermorgun brýtur geðstirður hemúll sér leið inn til múmínfjölskyldunnar og vekur hana af vetrardvala. Múmíndalurinn er gjörbreyttur, undarleg hvít og ísköld bómull þekur allt og fillífjonkur og kríli þeysast um með mat, grenitré og kerti. Allir eru að búa sig undir þetta skelfilega sem er á leiðinni, þetta sem kallast Jólin.

Sígildar söguperlur fyrir nýja kynslóð múmínálfaaðdáenda.

Jól í Múmindal er endursögn rithöfundanna Ceciliu Davidsson og Alex Haridi á sögu Tove Jansson, „Jólatréð“, þar sem múmínálfarnir fanga óafvitandi hinn sanna jólaanda.

Listakonan Filippa Widlund myndskreytir söguna.

Gerður Kristný íslenskaði.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Jól í Múmíndal

Jól í Múmíndal

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK