The 13 Yule Lads of Iceland
Brian Pilkington
🚚 Ships across Europe from Reykjavík
❤️ Popular with travelers to Iceland
For most of the year, the Lads are locked up in a cave in the remote highlands. But in the days running up to Christmas they are allowed an outing. One by one they come to town. Cloaked by the winter darkness, they sneak into every house and play a prank on the inhabitants before leaving a little treat for the children in their shoes in the windowsill.
/
Margir eiga erfitt með að muna í hvaða röð blessaðir jólasveinarnir koma til byggða. Nú er komin út hreint bráðskemmtileg bók sem leysir þann vanda á einu bretti og fræðir lesendur líka um ýmislegt gagnlegt um sveinana þrettán.
Vissir þú til dæmis að Stekkjarstaur er dálítill mömmustrákur? Eða af hverju varast skal að hafa mikið af táfýlusokkum í barnaherbergjum í kringum 22. desember? Já eða af hverju Grýla þarf sárasjaldan að vaska upp?
Í bókinni um Jólasveinana þrettán eru líka upplýsingar um uppáhaldsmat og gotterí mismunandi jólasveina og gefin góð ráð um hvernig best sé að kynnast þeim og skemmta. Þar er líka að finna alls konar jólalega fróðleiksmola, til dæmis um hvernig maður óskar fólki gleðilegra jóla á ýmsum tungumálum – meira að segja á táknmáli.
Höfundur textans og myndanna í bókinni um jólasveinana þrettán er fjölhæfur listamaður að nafni Brian Pilkington en hann á heiðurinn af ófáum listaverkum í íslenskum barnabókum auk þess sem hann hefur starfað vítt og breitt sem teiknari og myndskreytir.
Bókin kemur út á íslensku og ensku.
Deila

WHY BUY FROM SALKA
Salka is an independent bookstore based in Reykjavík, Iceland, specializing in Icelandic literature, culture, and curated international titles about Iceland.
We ship selected Icelandic books across Europe for readers interested in Icelandic culture, literature, and storytelling.
Recently viewed
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
The 13 Yule Lads of Iceland