Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Jón Steingrímsson og Skaftáreldar

4,690 ISK

Höfundur Jón Kristinn Einarsson

Í miðjum móðuharðindum sumarið 1784 sendi Lauritz Thodal stiftamtmaður séra Jón Steingrímsson með sex hundruð ríkisdali til sýslumannsins í Vík í Mýrdal.

Þetta var stórfé á þess tíma mælikvarða og átti að nýta til að endurreisa byggð í vesturhluta Skaftafellssýslu. Á leiðinni opnaði séra Jón sendinguna og deildi ófáum ríkisdölum út til nauðstaddra sem og sín sjálfs.Sú ákvörðun mæltist illa fyrir og Jón var kærður til yfirvalda í Kaupmannahöfn. Í bókinni er þetta mál greint á grundvelli áður ókannaðra heimilda. Fram kemur nýtt sjónarhorn á móðuharðindin, þar sem tekist var á um neyðarhjálp með gjörólíkum áherslum íslenskra og danskra embættismanna. Í viðauka eru prentaðar lýsingar séra Jóns og annarra á Skaftáreldum auk nokkurra bréfa sem veita innsýn í samskipti manna sumarið 1784.

Már Jónsson prófessor í sagnfræðivið Háskóla Íslands bjó skjölin til útgáfu.