Jórunn Viðar ævisaga

Árni Heimir Ingólfsson

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

9,490 ISK
9,490 ISK 0 ISK

Jórunn Viðar var fyrsta íslenska konan sem sótti háskólamenntun í tónsmíðum, hún braut blað sem tónskáld og átti glæstan feril sem píanóleikari. Þó var henni margt mótdrægt. Viðtökur á verkum hennar lituðust oft af því að hún var kona og í hjónabandinu fann hún sjaldan þá hvatningu eða skilning sem hefði getað fleytt henni lengra á listabrautinni.

Jórunn Viðar var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi á 20. öld. Hér er saga hennar sögð í fyrsta sinn og byggir Árni Heimir Ingólfsson verkið að miklum hluta á óprentuðum gögnum sem aldrei hefur verið vitnað til áður, meðal annars fjölda sendibréfa. Fjallað er um æskuárin í Reykjavík, námsár í Berlín rétt fyrir síðari heimsstyrjöld og í New York á stríðsárunum og þá glímu sem við tók eftir að heim til Íslands var komið. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem hvergi hafa birst opinberlega.

Árni Heimir Ingólfsson er tónlistarfræðingur og píanóleikari. Hann hefur þrívegis verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir verk sín og sömuleiðis í þrígang verið tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis.

Jórunn Viðar – ævisaga er tímamótaverk um eina af merkustu tónlistarkonum Íslands á 20. öld.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Jórunn Viðar ævisaga

Jórunn Viðar ævisaga

9,490 ISK
9,490 ISK 0 ISK