Kasia og Magdalena

5,490 ISK
5,490 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Magdalena er í haldi lögreglu, ötuð blóði. Tveir menn létu lífið á heimili hennar fyrr um kvöldið, að því er virðist með voveiflegum hætti. Í yfirheyrslum gefur Magdalena lítið upp um atburði kvöldsins því lögreglan má alls ekki komast að því að hún var ekki sú eina sem slapp lifandi út úr íbúðinni.

Magdalena hefur verið undir eftirliti Barnaverndarnefndar stærstan hluta ævinnar og dvalið á ótal fósturheimilum. Mamma hennar glímir við fíkn og þótt hún hafi ævinlega gert sitt besta hefur það ekki alltaf verið nóg. Undanfarin ár hafa þær mæðgur þó búið saman og lífið verið býsna gott, en nú virðist mamma hennar vera að missa fótanna aftur. Þegar Magdalena verður ástfangin af Kasiu finnur hún loks öryggið sem hana hefur alltaf skort. Þess vegna lætur hún allar vísbendingar um skuggalega fortíð hennar sem vind um eyrun þjóta.

Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda ungmennabóka og hlotið fyrir þær ýmsar viðurkenningar, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar. Hún hefur jafnframt verið tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Kasia og Magdalena

Kasia og Magdalena

5,490 ISK
5,490 ISK 0 ISK