Kortlagning Íslands
Reynir Finndal Grétarsson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Hér eru helstu Íslandskort prentsögunnar birt saman í allri sinni litadýrð. Reynir Grétarsson hefur um árabil safnað Íslandskortum og rekur hann á lifandi og skemmtilegan hátt þessa merku sögu.
Ísland birtist fyrst á prentuðu landakorti árið 1482. Fjórum öldum síðar hafði tekist að mæla landið og strandlínu þess nægilega vel til að draga upp kort sem sýndi vogskorna strönd Íslands eins nákvæmlega og unnt var. Saga þess hvernig lögun Íslands þróaðist á fjórum öldum er heillandi og viðburðarík. Á þessum tíma gerðu kortagerðarmenn um alla Evrópu glæsileg og fagurlega myndskreytt kort af Íslandi og Norður-Atlantshafi sem eru augnayndi og sum hver ein glæsilegustu kort sem nokkru sinni hafa verið prentuð.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Kortlagning Íslands