Krimmasmásögur
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Hvenær drepur maður mann og hvenær ekki? Hér segir af breyskum karakterum og fólki sem verður öðrum að bana – í grandaleysi. Að baki búa ýmsar ástæður: heift, hatur, hefnd, öfund, afbrýðisemi og logsár girnd, græðgi, árátta, spilling en líka óyndi, andúð og útskúfun.
Þetta eru svonefndar kósíglæpasögur, stuttar með húmorísku ívafi, nema síðasta sagan sem segir frá morðfýsn raðmorðingja í anda Axlar-Björns.
Höfundur skrifar af lipurð í laufléttum stíl.
Ragnhildur Bragadóttir er sagnfræðingur og upplýsingafræðingur að mennt og hefur m.a. starfað sem skjalastjóri, þýðandi og ritstjóri. Hún hefur áður sent frá sér skáldsöguna Klökkna klakatár.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Krimmasmásögur