Bylur

Íris Ösp Ingjaldsdóttir

3,990 ISK
3,990 ISK 4,690 ISK

Bergur er hamingjusamur fjölskyldufaðir í góðri vinnu. Lífið er fullkomið þar til að sonur hans deyr og heiftin gagntekur hann. Hann er staðráðinn í að leita hefnda og beinist reiði hans að Öldu og syni hennar Styrmi. Vel falinn bakgrunnur Bergs kemur upp á yfirborðið og Alda og Styrmir eru í bráðri hættu. Spennan magnast þegar sannleikurinn kemur smám saman í ljós. Hver á raunverulega sök á dauða Daníels?


Bylur er meistaralega fléttuð spennusaga úr smiðju Írisar Aspar Ingjaldsdóttur. Fyrri bók hennar, Röskun, hlaut afar góðar viðtökur og er á leiðinni á hvíta tjaldið.

„Sagan ber höfuð og herðar yfir vel margar spennusögur skrifaðar af okkar þekktustu höfundum þessa dagana. Ég mæli sérstaklega með lestri hennar í sumarfríinu fyrir þá aðdáendur spennusagna sem vilja skemmta sér vel í góðri fléttu.

Sjöfn Asare, Lestrarklefinn

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Bylur

Bylur

3,990 ISK
3,990 ISK 4,690 ISK